FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JÚNÍ 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 53,0 milljörðum króna í maí 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 51,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,7 milljarða króna. Í maí 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,8 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 10,3 milljörðum króna minna í maí 2020 en í maí 2019 eða sem nemur 16,3% á gengi hvors árs. Minni viðskipti voru í öllum flokkum, þá sérstaklega í útflutningi á iðnaðarvöru.

Verðmæti vöruinnflutnings í maí 2020 var 14,8 milljörðum lægra en í maí 2019 eða 22,4% á gengi hvors árs. Lækkun var í öllum flokkum nema í innflutningi á hrávörum og rekstrarvörum.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.