FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. DESEMBER 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 53 milljörðum króna í nóvember 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 58,5 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 5,5 milljarða króna. Í nóvember 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 7 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 0,8 milljörðum króna meiri í nóvember 2020 en í nóvember 2019 eða sem nemur 1,5% á gengi hvors árs. Mestu munar um meira verðmæti í útflutningi sjávarafurða en á móti kom lækkun á verðmæti iðnaðarvara.

Verðmæti vöruinnflutnings í nóvember 2020 var 0,7 milljörðum króna lægra en í nóvember 2019 eða 1,2% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á eldsneyti og flutningatækjum.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.