FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. NÓVEMBER 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 61,5 milljörðum króna í október 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 61,9 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 0,4 milljarða króna. Í október 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 0,3 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 3,6 milljörðum króna minna í október 2020 en í október 2019 eða sem nemur 5,5% á gengi hvors árs. Mestu munar um minna verðmæti í útflutningi sjávarafurða en á móti jókst verðmæti í útflutningi á iðnaðarvörum.

Verðmæti vöruinnflutnings í október 2020 var 2,9 milljörðum króna lægra en í október 2019 eða 4,5% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á eldsneyti.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.