FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. OKTÓBER 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 61,6 milljörðum króna í september 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 65,4 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3,8 milljarða króna. Í september 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 19 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 11,2 milljörðum króna meira í september 2020 en í september 2019 eða sem nemur 22,2% á gengi hvors árs. Útflutningur jókst í öllum greinum borið saman við sama tímabil fyrra árs.

Verðmæti vöruinnflutnings í september 2020 var 4 milljörðum króna lægra en í september 2019 eða 5,8% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á eldsneyti.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.