Út er komið heftið Vöruviðskipti við útlönd 2010. Í ritinu kemur m.a. fram að fluttar voru út vörur fyrir 561,0 milljarð króna en inn fyrir 440,8 milljarða króna fob, 477,2 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 120,2 milljörðum króna en 90,3 milljarða króna afgangur var árið 2009 á gengi hvors árs. Vöruútflutningur jókst um 12,0% frá fyrra ári á gengi hvors árs og vöruinnflutningur um 7,0%. Hlutur sjávarafurða var 39,3% og iðnaðarvöru 55,4% en í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur, fjárfestingarvörur og neysluvörur aðrar en mat- og drykkjarvörur. Stærstu viðskiptalönd voru Holland í vöruútflutningi og Noregur í vöruinnflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í vöruútflutningi sem vöruinnflutningi.
Samhliða útgáfu heftisins eru birtar sundurliðaðar töflur með endanlegum tölum fyrir árið 2010 á vef Hagstofunnar. Athygli skal vakin á því að tollstjóri hefur breytt tollflokkun á soðinni pillaðri rækju. Hún er nú flokkuð í 16. kafla en var í 3. kafla áður. Hagstofan hefur lagfært gögn áranna 2008 og 2009 í samræmi við það.
Vöruviðskipti við útlönd 2010 - Hagtíðindi
Talnaefni