Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir apríl 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings 48,0 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 61,4 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru óhagstæð um 13,4 milljarða króna.
Í apríl 2018 var verðmæti vöruútflutnings 6,7 milljörðum króna hærra en í apríl 2017 eða 16% á gengi hvors árs. Hækkun var í öllum flokkum milli ára en mestu munar um sjávarafurðir og iðnaðarvörur.
Verðmæti vöruinnflutnings í apríl var 9,7 milljörðum króna hærra en í apríl 2017 eða 19% á gengi hvors árs. Þessi munur milli tímabila skýrist bæði af innflutningi á skipum og flugvélum og innflutningi á eldsneyti. Það skal þó haft í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða svo þessi staða gæti breyst eftir endurskoðun í lok mánaðarins.