Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir apríl 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 50,2 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 66,1 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um rúmlega 15,9 milljarða króna. Í apríl 2018 voru vöruviðskiptin hins vegar óhagstæð um 15,6 milljarða króna á gengi hvors árs. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn í apríl 2019 en vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla var óhagstæður um 10,8 milljarða í sama mánuði árið áður.

Í apríl 2019 var verðmæti vöruútflutnings 3,7 milljörðum króna hærri en í apríl 2018, eða 7,8% á gengi hvors árs. Mest var aukningin í viðskiptum með sjávarafurðir.

Verðmæti vöruinnflutnings í apríl 2019 var 3,9 milljarði króna hærri en í apríl 2018 eða 6,3% á gengi hvors árs. Mest var aukning var í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015-2019

Talnaefni