Vöruviðskiptin í desember 2017 voru óhagstæð um 20,1 milljarð samkvæmt bráðabirgðatölum
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember 2017 nam fob verðmæti vöruútflutnings 41,7 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 61,8 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 20,1 milljarð króna.