Vöruviðskiptajöfnuður
Í janúar 2019 voru fluttar út vörur fyrir 59,4 milljarða króna og inn fyrir 52,5 milljarða króna fob (56,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæplega 7 milljarða króna. Í janúar 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,8 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuður í janúar 2019 var því 9,7 milljörðum króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam afgangur vegna vöruviðskipta í mánuðinum 4,7 milljörðum króna, samanborið við 2,7 milljarða króna halla í janúar 2018. Síðast var afgangur á vöruviðskiptum í október 2016, um 1,5 milljarða króna á gengi þess árs.
Útflutningur
Í janúar 2019 var verðmæti vöruútflutnings 11,1 milljarði króna hærri en í janúar árið áður, eða 22,9% á gengi hvors árs1. Aukninguna má aðallega rekja til aukins útflutnings á sjávarafurðum og iðnaðarvörum. Iðnaðarvörur voru 51,0% alls útflutnings og jókst verðmæti þeirra um 12,8% miðað við janúar á síðasta ári. Sjávarafurðir voru 37,5% alls útflutnings og jókst verðmæti þeirra um 24,6% miðað við sama tíma á síðasta ári.
Innflutningur
Í janúar 2019 var verðmæti vöruinnflutnings 1,3 milljörðum króna hærri en í janúar árið áður, eða 2,6% á gengi hvors árs¹. Innflutningur jókst mest á matvörum og drykkjavörum.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar 2018 og 2019 | |||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % | ||
Janúar | |||
2018 | 2019 | Jan - jan | |
Útflutningur alls fob | 48.366,0 | 59.434,2 | 22,9 |
Sjávarafurðir | 17.891,1 | 22.287,6 | 24,6 |
Landbúnaðarvörur | 2.256,1 | 3.082,0 | 36,6 |
Iðnaðarvörur | 26.879,1 | 30.329,2 | 12,8 |
Aðrar vörur | 1.339,7 | 3.735,5 | 178,8 |
Innflutningur alls fob | 51.146,5 | 52.472,5 | 2,6 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.032,6 | 6.091,7 | 51,1 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 12.008,2 | 13.854,5 | 15,4 |
Eldsneyti og smurolíur | 7.892,1 | 5.716,3 | -27,6 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 14.321,2 | 14.451,0 | 0,9 |
Flutningatæki | 6.044,6 | 4.762,9 | -21,2 |
Neysluvörur ót.a. | 6.788,9 | 7.549,6 | 11,2 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 58,9 | 46,5 | -21,0 |
Vöruviðskiptajöfnuður | -2.780,5 | 6.961,7 | -350,4 |
1Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum. Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.