Vöruviðskiptajöfnuður
Í ágúst 2018 voru fluttar út vörur fyrir 50,9 milljarða króna og inn fyrir 67,9 milljarða króna fob (72,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17 milljarða króna. Í ágúst 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 6,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í ágúst 2018 var því 10,1 milljarði króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 20,1 milljarði króna samanborið við 6,8 milljarða króna halla í ágúst 2017.
Á tímabilinu janúar til ágúst 2018 voru fluttar út vörur fyrir 388,4 milljarða króna en inn fyrir 501,7 milljarða (535,3 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 113,3 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 113,9 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn á tímabilinu janúar til ágúst er því 0,6 milljörðum króna minni en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 101,8 milljörðum króna, samanborið við 102,3 milljarða króna á sama tíma árið áður.
ÚtflutningurÁ fyrstu átta mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 58,4 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 17,2% á gengi hvors árs.¹ Iðnaðarvörur voru 53,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,2% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 39,2% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,1% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var öllum undirliðum sjávarafurða en aukninguna á milli ára má meðal annars rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.
Innflutningur
Á fyrstu átta mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 57,8 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 13,0% á gengi hvors árs.¹ Mestu munaði um innflutning á eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingu í flugvélum.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til ágúst 2017 og 2018 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra | ||||
Ágúst | Janúar-Ágúst | ári á gengi hvors árs, % | |||
2017 | 2018 | 2017 | 2018 | jan-ág | |
Útflutningur alls fob | 45.161,4 | 50.890,1 | 329.974,0 | 388.412,6 | 17,71 |
Sjávarafurðir | 18.246,0 | 18.953,8 | 123.786,9 | 152.336,7 | 23,06 |
Landbúnaðarvörur | 1.892,9 | 1.091,9 | 13.001,1 | 12.348,4 | - 5,02 |
Iðnaðarvörur | 24.345,5 | 26.344,6 | 181.175,3 | 206.987,7 | 14,25 |
Aðrar vörur | 677,0 | 4.499,8 | 12.010,7 | 16.739,8 | 39,37 |
Innflutningur alls fob | 52.056,8 | 67.912,7 | 443.910,1 | 501.730,4 | 13,03 |
Matvörur og drykkjarvörur | 5.111,2 | 5.395,7 | 37.568,0 | 40.249,6 | 7,14 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 14.708,4 | 19.794,5 | 118.463,7 | 135.497,4 | 14,38 |
Eldsneyti og smurolíur | 5.379,0 | 13.426,2 | 46.128,3 | 73.728,3 | 59,83 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.652,8 | 14.097,2 | 94.704,9 | 105.954,9 | 11,88 |
Flutningatæki | 8.061,2 | 7.453,5 | 89.258,4 | 82.853,3 | - 7,18 |
Neysluvörur ót.a. | 8.100,5 | 7.685,1 | 57.581,6 | 60.523,5 | 5,11 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 43,7 | 60,6 | 205,2 | 2.923,3 | 1.324,61 |
Vöruviðskiptajöfnuður | -6.895,4 | -17.022,7 | -113.936,1 | -113.317,8 | - 0,01 |
1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.