FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í apríl voru fluttar út vörur fyrir 47,2 milljarða króna og inn fyrir 53,5 milljarða króna fob (57,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,3 milljarða króna. Í apríl 2015 voru vöruviðskiptin hagstæð um 3,3 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 179,8 milljarða króna en inn fyrir 210,7 milljarða króna fob (224,2 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 30,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin hagstæð um 8,9 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 39,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 41,7 milljörðum króna lægra, eða 18,8%, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 26,3% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,8% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,9 milljörðum króna lægra, eða 0,9%, á gengi hvors árs¹, en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Apríl Jan.-apríl ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.-apríl
           
Útflutningur alls fob 56.813,9 47.219,5 221.447,1 179.774,6 -18,8
Sjávarafurðir 23.392,3 19.414,0 88.784,8 77.402,3 -12,8
Landbúnaðarvörur 940,1 1.665,9 4.841,1 5.800,8 19,8
Iðnaðarvörur 31.728,7 25.385,5 124.070,6 91.480,7 -26,3
Aðrar vörur 752,8 754,1 3.750,6 5.090,8 35,7
           
Innflutningur alls fob 53.501,9 53.538,2 212.530,1 210.669,5 -0,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.485,9 4.604,3 20.167,1 17.836,1 -11,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.720,8 15.457,6 64.527,3 55.053,1 -14,7
Eldsneyti og smurolíur 6.330,3 4.622,5 24.359,9 16.403,5 -32,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.165,5 11.620,8 40.479,9 48.361,6 19,5
Flutningatæki 8.492,9 10.306,1 36.654,4 43.786,3 19,5
Neysluvörur ót.a. 6.898,7 6.843,0 25.766,0 29.018,3 12,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 407,8 83,8 575,5 210,6 -63,4
           
Vöruskiptajöfnuður 3.311,9 -6.318,7 8.917,1 -30.894,8 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.