Vöruviðskiptajöfnuður
Í apríl 2018 voru fluttar út vörur fyrir 46,6 milljarða króna og inn fyrir 62,3 milljarða króna fob (66,5 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 15,7 milljarða króna. Í apríl 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,5 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í apríl 2018 var því 5,2 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 10,9 milljörðum króna samanborið við 10,4 milljarða króna halla í apríl 2017.
Á tímabilinu janúar til apríl 2018 voru fluttar út vörur fyrir 184,3 milljarða króna en inn fyrir 230,6 milljarða (246,0 milljarða króna cif). Halli á vöruskiptum við útlönd nam því 46,3 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 47,7 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn janúar til apríl er því 1,4 milljörðum króna lægri en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 34,1 milljarði króna, samanborið við 43,6 milljarða króna á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 34,2 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 22,8% á gengi hvors árs¹. Iðnaðarvörur voru 54,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 16,2% hærra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 32,9% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í öllum undirliðum sjávarútvegs en mestu munar um aukningu í frystum flökum og ferskum fiski.
Innflutningur
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 32,8 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 16,6% á gengi hvors árs¹. Mestu munar um innflutning á eldsneyti og fjárfestingu í flugvélum.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til apríl 2017 og 2018 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra | ||||
Apríl | Janúar-Apríl | ári á gengi hvors árs, % | |||
2017 | 2018 | 2017 | 2018 | jan-apr | |
Útflutningur alls fob | 41.243,5 | 46.584,0 | 150.069,2 | 184.268,7 | 22,8 |
Sjávarafurðir | 16.803,4 | 17.739,0 | 54.271,0 | 72.140,3 | 32,9 |
Landbúnaðarvörur | 1.316,8 | 1.094,8 | 6.059,8 | 7.078,6 | 16,8 |
Iðnaðarvörur | 22.264,7 | 26.814,6 | 86.281,1 | 100.281,9 | 16,2 |
Aðrar vörur | 858,6 | 935,7 | 3.457,2 | 4.768,0 | 37,9 |
Innflutningur alls fob | 51.700,4 | 62.282,8 | 197.778,9 | 230.580,5 | 16,6 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.607,9 | 5.628,4 | 16.447,6 | 19.088,6 | 16,1 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 16.138,2 | 15.357,8 | 57.557,2 | 62.258,2 | 8,2 |
Eldsneyti og smurolíur | 3.306,8 | 7.077,2 | 17.408,2 | 28.029,5 | 61,0 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 13.001,1 | 13.757,2 | 46.643,8 | 51.454,7 | 10,3 |
Flutningatæki | 8.196,9 | 12.956,2 | 33.405,4 | 40.215,8 | 20,4 |
Neysluvörur ót.a. | 6.423,0 | 7.488,5 | 26.212,0 | 29.258,5 | 11,6 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 26,4 | 17,5 | 104,7 | 275,2 | 162,8 |
Vöruviðskiptajöfnuður | -10.456,8 | -15.698,7 | -47.709,7 | -46.311,8 | -2,9 |
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.