FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. JANÚAR 2018

Vöruviðskiptajöfnuður
Í desember voru fluttar út vörur fyrir 43,1 milljarð króna og inn fyrir 69,6 milljarða fob (73,8 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæpa 26,6 milljarða króna. Í desember 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 7,9 milljarða á gengi hvors árs.¹

Árið 2017 voru fluttar út vörur fyrir 517,6 milljarða króna en inn fyrir 695,9 milljarða fob (741,2 milljarð króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 178,3 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti (161,9 milljarðar án skipa og flugvéla). Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 108,2 milljarða (79,9 milljarðar án skipa og flugvéla) á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn janúar-desember 2017 var því 70,1 milljarði króna (81,9 milljarðar án skipa og flugvéla) hærri en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Árið 2017 var verðmæti vöruútflutnings 19,8 milljörðum króna lægra, eða 3,7% á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,5% hærra en á sama tíma árið áður. Verðmæti útflutnings á áli jókst en útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman. Sjávarafurðir voru 38,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,1% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski.

Innflutningur
Árið 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 50,3 milljörðum króna hærra, eða 7,8% á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum, skipum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–desember 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Desember Jan-des ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.– des.
           
Útflutningur alls fob 41.515,7 43.056,0 537.444,8 517.648,6 -3,7
Sjávarafurðir 15.013,9 13.775,0 232.237,9 197.091,4 -15,1
Landbúnaðarvörur 1.766,2 2.068,6 16.844,5 19.838,2 17,8
Iðnaðarvörur 23.582,1 24.882,5 270.407,9 279.930,9 3,5
Aðrar vörur 1.153,5 2.329,9 17.954,6 20.788,1 15,8
           
Innflutningur alls fob 49.451,6 69.609,0 645.611,6 695.907,9 7,8
Matvörur og drykkjarvörur 4.062,5 4.186,3 57.418,8 56.758,1 -1,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.851,0 20.093,2 168.494,0 186.716,6 10,8
Eldsneyti og smurolíur 5.525,2 6.637,9 69.867,6 79.842,5 14,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.129,6 13.075,6 140.651,0 148.745,2 5,8
Flutningatæki 8.442,2 15.758,5 120.118,3 131.104,8 9,1
Neysluvörur ót.a. 7.392,4 9.760,7 88.542,6 92.378,2 4,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 48,8 96,7 519,4 362,5 -30,2
           
Vöruskiptajöfnuður -7.935,9 -26.553,0 -108.166,8 -178.259,3 .

Lokatölur fyrir árið 2017 verða birtar í maí 2018.

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.