FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2016

Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 42,5 milljarða króna og inn fyrir 45,5 milljarða króna fob (48,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3 milljarða króna. Í febrúar 2015 voru vöruskiptin óhagstæð um 9 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu tvo mánuði ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 88,4 milljarða króna en inn fyrir rúma 92,3 milljarða króna fob (98,6 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 4,0 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 2,6 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 1,4 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.                

Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 12,9 milljörðum eða 12,8% lægra, á gengi hvors árs1, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 49,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 26,3% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 43,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra svipað og á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 11,5 milljörðum eða 11,1% lægra, á gengi hvors árs¹, en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á flugvélum saman, ásamt eldsneyti og hrá- og rekstrarvörum en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum.                                                                           

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-febrúar 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Febrúar Jan.-febrúar ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.-febrúar
           
Útflutningur alls fob 50.945,1 42.509,8 101.279,9 88.353,4 -12,8
Sjávarafurðir 20.943,5 18.261,5 37.981,1 38.628,3 1,7
Landbúnaðarvörur 1.329,6 1.550,2 2.647,9 2.924,1 10,4
Iðnaðarvörur 27.862,7 22.015,8 58.825,9 43.354,5 -26,3
Aðrar vörur 809,3 682,3 1.825,0 3.446,4 88,8
           
Innflutningur alls fob 60.038,3 45.466,5 103.850,2 92.318,9 -11,1
Matvörur og drykkjarvörur 4.410,8 4.360,3 9.499,7 8.147,4 -14,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.953,6 11.940,4 29.814,8 24.535,4 -17,7
Eldsneyti og smurolíur 5.155,3 3.628,6 11.924,9 7.649,9 -35,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.709,4 11.541,5 19.291,5 23.733,2 23,0
Flutningatæki 17.809,8 7.554,8 21.447,3 14.013,0 -34,7
Neysluvörur ót.a. 5.909,9 6.426,6 11.758,6 14.140,1 20,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 89,5 14,3 113,4 99,8 -11,9
           
Vöruskiptajöfnuður -9.093,2 -2.956,7 -2.570,3 -3.965,5 .

1Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.