FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JÚLÍ 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í júní voru fluttar út vörur fyrir rúma 48,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 62,4 milljarða króna fob (66,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,0 milljarða króna. Í júní 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,1 milljarð króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrri helmingi ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 274,9 milljarða króna en inn fyrir 338,1 milljarð króna fob (359,6 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 63,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 4,2 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 59 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrri helmingi ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 57,9 milljörðum króna lægra, eða 17,4%, á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 43,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,0% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 50,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 22,4% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Á fyrri helmingi ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,1 milljarði króna lægra, eða 0,3%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júní 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Júní Jan.–júní ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–júní
           
Útflutningur alls fob 56.183,3 48.334,2 332.821,1 274.892,8 -17,4
Sjávarafurðir 27.433,8 20.550,0 139.869,6 118.820,3 -15,0
Landbúnaðarvörur 771,6 1.106,4 6.393,3 8.173,2 27,8
Iðnaðarvörur 26.822,4 25.641,8 179.377,3 139.171,3 -22,4
Aðrar vörur 1.155,5 1.036,1 7.180,8 8.728,0 21,5
           
Innflutningur alls fob 66.325,9 62.380,4 336.995,9 338.106,2 0,3
Matvörur og drykkjarvörur 6.303,7 5.413,2 32.371,1 28.705,2 -11,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 21.843,5 14.662,0 101.515,5 85.716,0 -15,6
Eldsneyti og smurolíur 9.514,4 8.146,3 41.038,1 30.090,0 -26,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 13.309,8 12.061,8 64.906,3 73.638,4 13,5
Flutningatæki 8.869,6 14.643,2 58.087,2 74.938,0 29,0
Neysluvörur ót.a. 6.399,0 7.378,3 38.392,0 44.707,3 16,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 86,0 75,5 685,8 311,3 -54,6
           
Vöruskiptajöfnuður -10.142,6 -14.046,2 -4.174,8 -63.213,4 .

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.