FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. APRÍL 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,2 milljarða króna og inn fyrir 65,2 milljarða króna fob (68,8 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 21 milljarð króna. Í mars 2015 voru vöruviðskiptin hagstæð um 8,2 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 132,6 milljarða króna en inn fyrir rúma 157,4 milljarða króna fob (167,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 24,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin hagstæð um 5,6 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 30,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.                                                                                                                

Útflutningur
Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 32,1 milljarði eða 19,5% lægra, á gengi hvors árs1, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 49,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28,4% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 11,3% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,6 milljörðum eða 1,0% lægra, á gengi hvors árs¹, en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum saman ásamt eldsneyti en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.                                                           

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-mars 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Mars Jan.-mars ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.-mars
           
Útflutningur alls fob 63.353,4 44.201,8 164.633,3 132.555,2 -19,5
Sjávarafurðir 27.411,5 19.360,0 65.392,5 57.988,3 -11,3
Landbúnaðarvörur 1.253,2 1.210,9 3.901,0 4.135,0 6,0
Iðnaðarvörur 33.516,0 22.730,9 92.342,0 66.095,4 -28,4
Aðrar vörur 1.172,7 900,1 2.997,7 4.336,5 44,7
           
Innflutningur alls fob 55.177,9 65.225,8 159.028,1 157.446,7 -1,0
Matvörur og drykkjarvörur 6.181,6 5.084,4 15.681,2 13.231,8 -15,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 17.991,6 15.139,8 47.806,5 39.672,2 -17,0
Eldsneyti og smurolíur 6.104,6 4.131,5 18.029,5 11.781,3 -34,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.022,9 13.119,1 30.314,5 36.758,2 21,3
Flutningatæki 6.714,2 19.663,6 28.161,6 33.676,9 19,6
Neysluvörur ót.a. 7.108,6 8.060,5 18.867,2 22.199,6 17,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 54,3 26,9 167,7 126,8 -24,4
           
Vöruskiptajöfnuður 8.175,5 -21.024,0 5.605,1 -24.891,5 .

1Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.