FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. APRÍL 2018

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 30. apríl 2018 09:35 frá upprunalegri útgáfu.

Vöruviðskiptajöfnuður
Í mars 2018 voru fluttar út vörur fyrir 43,3 milljarða króna og inn fyrir 57,3 milljarða króna fob (61,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14 milljarða króna. Í mars 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í mars 2018 var því 1,9 milljörðum króna lægri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 13,2 milljörðum króna samanborið við 16 milljarða króna halla í mars 2017.

Á tímabilinu janúar til mars 2018 voru fluttar út vörur fyrir rúmar 137,7 milljarða króna en inn fyrir 168,4 milljarða (179,7 milljarða króna cif). Því var halli á vöruskiptum við útlönd sem nam 30,7 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 37,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn janúar til mars er því 6,6 milljörðum króna lægri en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 23,3 milljörðum króna, samanborið við 33,2 milljarða króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 28,9 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 26,6% á gengi hvors árs¹. Iðnaðarvörur voru 53,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,9% hærra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,5% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 45,2% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukins útflutnings á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 22,3 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 15,3% á gengi hvors árs¹. Innflutningur jókst mest á eldsneyti og flugvélum.

  

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til mars 2017 og 2018    
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Mars Janúar-Mars ári á gengi hvors árs, %
  2017 2018 2017 2018 jan-mars
           
Útflutningur alls fob 39.705,8 43.252,5 108.825,7 137.758,9 26,6
Sjávarafurðir 15.534,6 17.620,5 37.467,6 54.401,3 45,2
Landbúnaðarvörur 1.317,1 1.447,9 4.743,0 5.983,1 26,1
Iðnaðarvörur 21.879,0 23.247,6 64.016,4 73.542,2 14,9
Aðrar vörur 975,1 936,5 2.598,6 3.832,3 47,5
           
Innflutningur alls fob 55.602,8 57.252,2 146.078,5 168.421,3 15,3
Matvörur og drykkjarvörur 4.311,0 4.728,2 11.839,7 13.477,5 13,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.704,7 17.104,2 41.419,0 46.985,7 13,4
Eldsneyti og smurolíur 6.535,5 6.838,9 14.101,3 20.952,2 48,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.893,0 11.732,0 33.642,7 37.706,4 12,1
Flutningatæki 8.921,2 8.915,5 25.208,5 27.271,7 8,2
Neysluvörur ót.a. 7.223,1 7.918,4 19.789,0 21.770,1 10,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 14,3 15,0 78,4 257,7 228,8
           
Vöruviðskiptajöfnuður -15.897,0 -13.999,7 -37.252,9 -30.662,4 -17,7

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.