FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JANÚAR 2016

Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,5 milljarða króna og inn fyrir tæpan 52,1 milljarð króna fob (55,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 600 milljónir króna. Í nóvember 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 4,4 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 578,4 milljarða króna en inn fyrir 599,8 milljarða króna fob (640,1 milljarð króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 21,3 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin hagstæð um 503 milljónir á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 37,0 milljörðum eða 6,8% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,4% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 8,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli. Á móti dróst útflutningur á heilfrystum fiski saman.

Innflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 58,8 milljörðum eða 10,9% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tímabili árið áður. Aðallega jókst innflutningur á hrávöru og rekstrarvöru ásamt flugvélum en á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-nóvember 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Nóvember Jan.-nóvember ári á gengi hvors árs,
  2014 2015 2014 2015 % jan.-nóvember
           
Útflutningur alls fob 50.428,2 51.488,8 541.496,8 578.448,2 6,8
Sjávarafurðir 19.933,0 23.769,0 225.095,8 245.108,7 8,9
Landbúnaðarvörur 1.551,0 1.483,2 10.479,6 12.417,3 18,5
Iðnaðarvörur 27.907,7 25.298,8 282.340,5 306.909,6 8,7
Aðrar vörur 1.036,5 937,8 23.580,9 14.012,6 -40,6
           
Innflutningur alls fob 46.032,6 52.096,7 540.994,3 599.773,1 10,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.649,1 5.144,5 50.216,8 60.721,3 20,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.308,9 13.444,6 146.791,4 172.442,1 17,5
Eldsneyti og smurolíur 7.871,5 5.835,1 98.258,7 78.895,2 -19,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.223,3 13.254,7 113.190,5 125.342,9 10,7
Flutningatæki 4.201,3 6.485,9 63.215,9 86.910,7 37,5
Neysluvörur ót.a. 6.694,7 7.879,0 67.298,6 74.254,5 10,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 83,7 52,9 2.022,4 1.206,4 -40,4
           
Vöruskiptajöfnuður 4.395,6 -617,9 502,6 -21.325,0 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.