FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JANÚAR 2018

Vöruviðskiptajöfnuður
Í nóvember voru fluttar út vörur fyrir 47,5 milljarða króna og inn fyrir 56,2 milljarða fob (60 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 8,7 milljarða króna. Í nóvember 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 11,6 milljarða á gengi hvors árs.¹

Í janúar-nóvember 2017 voru fluttar út vörur fyrir 474,6 milljarða króna en inn fyrir 626,4 milljarða fob (667,6 milljarð króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 151,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 100,2 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í janúar-nóvember 2017 var því 51,7 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Í janúar-nóvember 2017 var verðmæti vöruútflutnings 21,4 milljörðum króna lægra, eða 4,3% á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% hærra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli jókst en útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman. Sjávarafurðir voru 38,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,6% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski.

Innflutningur
Í janúar-nóvember 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 30,3 milljörðum króna hærra, eða 5,1% á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á skipum, hrá- og rekstrarvörum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–nóvember 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Nóvember Jan-Nóv ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.– nóv.
           
Útflutningur alls fob 41.015,2 47.513,2 495.929,1 474.551,4 -4,3
Sjávarafurðir 17.420,7 18.289,5 217.224,0 183.316,4 -15,6
Landbúnaðarvörur 1.847,0 1.821,6 15.078,4 17.769,6 17,8
Iðnaðarvörur 20.440,5 26.398,7 246.825,7 255.048,5 3,3
Aðrar vörur 1.307,0 1.003,4 16.801,1 18.416,9 9,6
           
Innflutningur alls fob 52.639,6 56.238,4 596.160,0 626.445,0 5,1
Matvörur og drykkjarvörur 4.578,8 4.990,9 53.356,4 52.577,3 -1,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.509,8 14.838,0 154.643,0 166.643,3 7,8
Eldsneyti og smurolíur 5.117,8 6.701,1 64.342,4 73.203,1 13,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 12.550,8 13.236,3 130.521,4 135.741,3 4,0
Flutningatæki 7.791,9 7.128,8 111.676,1 115.394,7 3,3
Neysluvörur ót.a. 8.004,8 9.319,7 81.150,2 82.619,7 1,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 85,7 23,7 470,6 265,8 -43,5
           
Vöruskiptajöfnuður -11.624,4 -8.725,3 -100.230,9 -151.893,7 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.