Vöruviðskiptajöfnuður
Í september voru fluttar út vörur fyrir rúma 46,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 49,7 milljarða króna fob (53,0 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3,3 milljarða króna. Í september 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 8,4 milljarða króna á gengi hvors árs.¹
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 405,7 milljarða króna en inn fyrir 495,3 milljarða króna fob (527,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 89,6 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,1 milljarð á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 72,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 74,0 milljörðum króna lægra, eða 15,4%, á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,5% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,5% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% lægra en á sama tíma árið áður.
Innflutningur
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,4 milljörðum króna lægra, eða 0,3%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–september 2015 og 2016 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra | ||||
September | Jan.–september | ári á gengi hvors árs, | |||
2015 | 2016 | 2015 | 2016 | % jan.–september | |
Útflutningur alls fob | 47.836,3 | 46.333,0 | 479.680,5 | 405.702,4 | -15,4 |
Sjávarafurðir | 22.485,5 | 19.877,5 | 201.345,2 | 176.402,7 | -12,4 |
Landbúnaðarvörur | 1.111,4 | 1.320,4 | 9.235,9 | 11.825,8 | 28,0 |
Iðnaðarvörur | 23.035,9 | 23.812,7 | 257.027,7 | 204.313,4 | -20,5 |
Aðrar vörur | 1.203,5 | 1.322,4 | 12.071,7 | 13.160,6 | 9,0 |
Innflutningur alls fob | 56.255,6 | 49.652,5 | 496.765,3 | 495.344,7 | -0,3 |
Matvörur og drykkjarvörur | 6.049,5 | 5.644,2 | 51.091,1 | 44.312,6 | -13,3 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 15.713,6 | 14.263,9 | 145.258,4 | 128.264,9 | -11,7 |
Eldsneyti og smurolíur | 10.674,9 | 6.557,8 | 67.752,7 | 52.914,4 | -21,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.690,5 | 9.989,9 | 98.729,7 | 107.211,7 | 8,6 |
Flutningatæki | 5.128,6 | 5.936,8 | 73.670,3 | 96.448,3 | 30,9 |
Neysluvörur ót.a. | 7.975,3 | 7.232,2 | 59.126,7 | 65.807,5 | 11,3 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 23,2 | 27,7 | 1.136,4 | 385,3 | -66,1 |
Vöruskiptajöfnuður | -8.419,3 | -3.319,5 | -17.084,8 | -89.642,2 | . |
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.