Vöruviðskiptin í júlí voru óhagstæð um 9,6 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum.
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí 2016 nam fob verðmæti vöruútflutnings 43,9 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 53,5 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,6 milljarða króna.