Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 52,1 milljarði króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 55,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3,1 milljarð króna. Í nóvember 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 18,8 milljarða króna á gengi hvors árs. Án skipa og flugvéla var vöruviðskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 1,8 milljarða króna.

Í nóvember 2019 var verðmæti vöruútflutnings 1,7 milljörðum króna lægra en í nóvember 2018, eða 3,1% á gengi hvors árs. Minni viðskipti voru með iðnaðarvörur en á móti koma aukin viðskipti með landbúnaðarvörur.

Verðmæti vöruinnflutnings í nóvember 2019 var 17,4 milljörðum króna lægra en í nóvember 2018, eða 23,9% á gengi hvors árs. Mest var lækkunin í viðskiptum með hrá- og rekstarvörur og eldsneyti.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Vöruviðskipti í nóvember 2019 bráðabirgðatölur

Talnaefni