FRÉTT VERÐLAG 08. MARS 2007

Út er komið hefti Hagtíðinda um áfengisneyslu á árinu 2006 í efnisflokknum Verðlag og neysla.

Áfengissala hér á landi var um 23,2 millj. lítra árið 2006 á móti 21,8 millj. lítra árið 2005 og jókst salan því um 6,1%. Talið í alkóhóllítrum er aukningin 6,0%, eða úr 1.625 þús. alkóhóllítrum árið 2005 í 1.721 þús. alkóhóllítra árið 2006. Reiknað á hvern íbúa 15 ára og eldri, nam heildarsalan 7,20 alkóhóllítrum, en var 7,05 alkóhóllítrar á árinu 2005.

Sala á léttu víni eykst stöðugt og hefur sala á hvítvíni aukist sérstaklega mikið síðustu fjögur árin, en sala á rauðvíni jókst mun minna á árinu 2006, en fyrri ár. Sala á sterkum drykkjum jókst frá árinu 2005 og er það annað árið í röð sem sala á sterkum drykkjum eykst, en sala þeirra hafði minnkað milli ára flest árin frá árinu 1989, þegar sala á bjór var leyfð. Í alkóhóllítrum talið hefur sala bjórs verið um og yfir 50% af heildarsölu áfengis síðustu 5 ár.

Áfengisneysla 2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.