FRÉTT VERÐLAG 27. MARS 2008

Út er komið hefti Hagtíðinda um áfengisneyslu á árinu 2007 í efnisflokknum Verðlag og neysla.

Áfengissala hér á landi var um 24,8 milljónir lítra árið 2007 á móti 23,2 milljónum lítra árið 2006 og jókst salan því um 7%. Talið í alkóhóllítrum er aukningin 7,6%, eða  úr 1.722 þúsund alkóhóllítrum árið 2006 í 1.852 þúsund alkóhóllítra árið 2007. Reiknað á hvern íbúa 15 ára og eldri nam heildarsalan 7,53 alkóhóllítrum en var 7,2 alkóhóllítrar árið 2006.

Sala á sterkum drykkjum hefur aukist á ný á allra síðustu árum, en sala þeirra hafði minnkað milli ára flest árin eftir 1989 þegar sala á bjór var leyfð. Neysla gosblandaðra drykkja, sem eru að grunni til sterkir drykkir, hefur aukist mikið frá árinu 2000. Eilítið hefur hægt á hinni miklu aukningu sem var í sölu á léttum vínum í mörg ár, en sala á hvítvíni jókst þó mikið milli áranna 2006 og 2007 og hefur aukist sérstaklega mikið síðustu sex árin. Hlutfall bjórs í heildarsölu áfengis í alkóhóllítrum talið hefur verið nokkuð stöðugt hin síðari ár, eða um 52%.

Áfengisneysla 2007 -  Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.