Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,4% milli ágúst og september 2019. Afurðir stóriðju lækkuðu um 1,8% (áhrif á vísitölu -0,6%), matvæli lækkuðu um 0,3% (áhrif á vísitölu -0,1%), sjávarafurðir hækkuðu um 0,5% (0,1%) og annar iðnaður hækkaði um 0,7% (0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 4,5% frá september 2018 til september 2019. Þar af hækkuðu sjávarafurðir um 16,8%, annar iðnaður hækkaði um 7,6%, matvæli hækkuðu um 2,8% og á sama tíma lækkuðu afurðir stóriðju um 4,4%.

Útfluttar afurðir hækkuðu um 4,9% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkaði um 3,6%.

Vísitala framleiðsluverðs í september 2019
  Breyting frá fyrri mánuði 
Vísitala
4. ársf. 2005 = 100
% Áhrif á
vísitölu %
Breyting frá
fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 211,7 -0,4 -0,4 4,5
Eftir atvinnugreinum  
Sjávarafurðir 299,2 0,5 0,1 16,8
Stóriðja 199,8 -1,8 -0,6 -4,4
Matvæli 182,6 -0,3 -0,1 2,8
Annar iðnaður 157,7 0,7 0,2 7,6
   
Eftir mörkuðum  
Innlend sala 175,4 0,1 0,0 3,6
Útfluttar afurðir 233,7 -0,6 -0,4 4,9

Talnaefni