Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2012 var 15% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28, samkvæmt endanlegum niðurstöðum. Ísland var 12. í röð 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu).
Magn vergrar landsframleiðslu á mann árið 2012 var hæst í Lúxemborg 159% yfir meðaltali ESB ríkja en þar á eftir kom Noregur þar sem verg landsframleiðsla á mann var 87% yfir meðaltali ESB ríkja. Lúxemborg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.
Þegar litið er til bráðabirgðaniðurstaðna fyrir árið 2014 var landsframleiðsla á mann á Íslandi 19% yfir meðaltali ESB ríkja og Ísland í 10. til 11. sæti ríkjanna 37. Samkvæmt sömu niðurstöðum var Lúxemborg í 1. sæti en landsframleiðsla á mann var þar 166% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Noregur í 2. sæti þar sem landsframleiðsla á mann var 78% yfir meðaltalinu.
Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 13% yfir meðaltali ESB ríkja samkvæmt endanlegum niðurstöðum fyrir árið 2012. Þar var Ísland 11. í röð landanna 37 og var Lúxemborg í fyrsta sæti 41% yfir meðaltali ESB ríkjanna. Þegar litið er til bráðabirgðaniðurstaðna fyrir árið 2014 var einstaklingsbundin neysla á mann á Íslandi 16% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Ísland í 6. sæti af ríkjunum 37.
Hagstofa Íslands tekur þátt í samstarfi hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD um útreikning jafnvirðisgilda (PPP). Þau eru notuð til að umreikna hagrænar stærðir til sambærilegs verðlags svo unnt sé að bera saman rauntölur á milli landa.
Frétt Eurostat
Gagnasafn Eurostat um jafnvirðisgildi (PPP)