FRÉTT VERÐLAG 14. DESEMBER 2016

Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2013 var 17% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28, samkvæmt endanlegum niðurstöðum. Ísland var 11. í röð 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna 28 auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu).

Magn vergrar landsframleiðslu á mann árið 2013 var hæst í Lúxemborg, 161% yfir meðaltali ESB ríkja, en þar á eftir kom Noregur með verga landsframleiðsla á mann 84% yfir meðaltali ESB ríkja. Lúxemborg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.

Þegar litið er til bráðabirgðaniðurstaðna fyrir árið 2015 var landsframleiðsla á mann á Íslandi 23% yfir meðaltali ESB ríkja og Ísland í 10. sæti ríkjanna 37. Samkvæmt sömu niðurstöðum var Lúxemborg í 1. sæti en landsframleiðsla á mann var þar 164% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Írland í 2. sæti þar sem landsframleiðsla á mann var 77% yfir meðaltalinu.

Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 12% yfir meðaltali ESB ríkja samkvæmt endanlegum niðurstöðum fyrir árið 2013. Þar var Ísland 13. í röð landanna 37 og var Lúxemborg í fyrsta sæti 45% yfir meðaltali ESB ríkjanna. Þegar litið er til bráðabirgðaniðurstaðna fyrir árið 2015 var einstaklingsbundin neysla á mann á Íslandi 13% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Ísland í 10. sæti af ríkjunum 37.

Hagstofa Íslands tekur þátt í samstarfi hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD um útreikning jafnvirðisgilda (PPP). Þau eru notuð til að umreikna hagrænar stærðir til sambærilegs verðlags svo unnt sé að bera saman rauntölur á milli landa.

Frétt Eurostat

Gagnasafn Eurostat um jafnvirðisgildi (PPP)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.