FRÉTT VERÐLAG 15. JÚNÍ 2017

Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2016 var 29% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum. Ísland var 5. í röð 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu).

Magn vergrar landsframleiðslu á mann árið 2016 var hæst í Lúxemborg 167% yfir meðaltali ESB ríkja en þar á eftir kom Írland þar sem verg landsframleiðsla á mann var 77% yfir meðaltali ESB ríkja. Lúxemborg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.

Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 14% yfir meðaltali ESB ríkja samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016. Þar var Ísland 8. í röð landanna 37 og var Noregur í fyrsta sæti 32% yfir meðaltali ESB ríkjanna.

Hagstofa Íslands tekur þátt í samstarfi hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD um útreikning jafnvirðisgilda (PPP). Þau eru notuð til að umreikna hagrænar stærðir til sambærilegs verðlags svo unnt sé að bera saman rauntölur á milli landa.

Jafnvirðisgildi má nota til að bera saman verðlag milli landa. Myndirnar hér að neðan sýna samanburð á verðlagi í sömu 37 Evrópuríkjum fyrir ýmsar flokkanir á einkaneyslu. Þar má sjá að verðlag einkaneyslu á Íslandi árið 2016 var 47% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28 og annað hæst af Evrópuríkjunum 37.

Frétt Eurostat
Gagnasafn Eurostat um jafnvirðisgildi (PPP)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.