FRÉTT VERÐLAG 11. SEPTEMBER 2017

Innkaup heimila hafa breyst  síðustu mánuði vegna nýrra verslana sem hafa tekið til starfa. Hagstofa Íslands metur nú áhrifin á vísitölu neysluverðs og hvort tilefni sé til þess að gera breytingar á henni. Verði ástæða til koma þær breytingar fram í gildi vísitölu neysluverðs í desember 2017.

Til að meta breytingar á innkaupum heimila er nauðsynlegt að fyrir liggi ítarlegar upplýsingar um þau bæði verð og magn. Alla jafna eru breytingar á neyslu hægar og niðurstöður Rannsóknar á útgjöldum heimila breytast lítið milli ára en þátttakendur í rannsókninni veita Hagstofu Íslands mikilvæga heimild um hvar vörur eru keyptar með því að afhenda kvittanir úr innkaupum. Við árleg grunnskipti endurmetur Hagstofan innbyrðis vægi verslana út frá þessum upplýsingum og tekur tillit til breytinga á innkaupamynstri ef því er að skipta.

Hliðstæðar upplýsingar þurfa að vera tiltækar ef meta á breytingar á innkaupum heimila með tíðari hætti sem kallar á að leitað sé nýrra heimilda og þróaðar aðferðir við að vinna úr þeim nýtanlegar niðurstöður. Hagstofan mun gera grein fyrir niðurstöðunum og þeim aðferðum sem beitt verður.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.