FRÉTT VERÐLAG 24. JÚNÍ 2004

Gefin hafa verið út Hagtíðindi með niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna árin 2000-2002. Niðurstöður eru sundurliðaðar eftir búsetu og heimilisgerð auk þess sem heildarniðurstöður eru bornar saman við neyslukönnunina 1995. Þá er í heftinu að finna ýmsar upplýsingar um heimilin í landinu, svo sem um húsnæði, tækjaeign, áskriftir o.fl.
     Í úrtaki voru um 3.500 heimili, 1.907 þeirra tóku þátt í rannsókninnni og var svörun því um 55%.
     Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru meðalneysluútgjöld heimilis á ári um 3,5 milljónir króna eða nálægt 300 þúsund krónum á mánuði. Meðalheimilið telur 2,68 einstaklinga samanborið við 2,82 einstaklinga í neyslukönnun árið 1995.

Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2000-2002 - útgáfur 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.