Neysluútgjöld á heimili árin 2003–2005 hafa hækkað um 7,0% frá tímabilinu 2002–2004. Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,58 einstaklingum í 2,50 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 10,2%.
Hlutfall matar og drykkjarvöru í heimilisútgjöldum heldur áfram að lækka, úr 14,4% 2002-2004 í 12,9% 2003-2005. Hlutfall húsnæðis, hita og rafmagns hefur hækkað úr 22,9% í 25,4%.
Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni eru um 365 þúsund krónur á mánuði, tæpar 146 þúsund krónur á mann. Ráðstöfunartekjur flestra hópa eru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin eru að meðaltali um 94% af ráðstöfunartekjum.
Í úrtaki voru um 3.600 heimili, 1.773 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun því tæplega 50%.
Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2003-2005 - Hagtíðindi
Talnaefni