FRÉTT VERÐLAG 15. DESEMBER 2017

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016 var landsframleiðsla á mann á Íslandi 28% yfir meðaltali ESB ríkjanna og í fimmta sæti Evrópuríkjanna 37* en var í tíunda sæti ári fyrr. Lúxemborg var í fyrsta sæti þar sem landsframleiðsla á mann var 158% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Írland í öðru sæti, 83% yfir meðaltalinu. Lúxemborg sker sig úr, en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.

Samkvæmt endanlegum tölum fyrir árið 2014 var magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi 19% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28. Ísland var ellefta í röð ríkjanna 37.

Landsframleiðsla á mann árið 2014 var hæst í Lúxemborg, 170% yfir meðaltali ESB ríkja, en þar á eftir kom Noregur sem var 76% yfir meðaltali ESB ríkja.

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016 var magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi 14% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Ísland í áttunda sæti af ríkjunum 37.

Samkvæmt endanlegum tölum fyrir árið 2014 var magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi 13% yfir meðaltali ESB ríkja og landið ellefta í röð landanna 37. Þá var Lúxemborg í fyrsta sæti, 38% yfir meðaltali ESB ríkjanna.

Hagstofa Íslands tekur þátt í samstarfi hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD um útreikning jafnvirðisgilda (PPP). Þau eru notuð til að umreikna hagrænar stærðir til sambærilegs verðlags svo unnt sé að bera saman rauntölur á milli landa.

*37 Evrópuríki eru 28 Evrópusambandsríki auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu.

Frétt Eurostat

Gagnasafn Eurostat um jafnvirðisgildi (PPP)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.