FRÉTT VERÐLAG 01. MARS 2007

Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, var að meðaltali 2,2% árið 2006 sem er sama verðbólga og mældist árið 2005. Sambærileg verðbólga á Íslandi árið 2006 var 4,6% en árið 2005 var hún 1,4%.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju hefti Hagtíðinda sem gefið hefur verið út.

Samræmd vísitala neysluverðs 2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.