FRÉTT VERÐLAG 17. SEPTEMBER 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,5 stig (1996=100) í ágúst sl. og hækkaði um 0,2% frá júlí. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,3 stig, lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.
     Frá ágúst 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 2,3% á evrusvæðinu og 3,1% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,8% í Lettlandi og 7,2% í Ungverjalandi. Í Finnlandi mældist 0,3% verðhækkun og í Danmörku var verðbólgan 0,9%.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Júlí 2003 - júlí 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.