FRÉTT VERÐLAG 21. JANÚAR 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,5 stig (1996=100) í desember sl. og hækkaði um 0,3% frá nóvember. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 130,0 stig, hækkaði einnig um 0,3% frá fyrra mánuði.
     Frá desember 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og 2,9% á Íslandi.
Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,4% í Lettlandi og 5,8% í Slóvakíu. Minnst var verðbólgan í Finnlandi, 0,1% og í Svíþjóð, 0,9%.
     Meðalvísitala ársins 2004 fyrir EES-ríkin var 115,3 stig, 2,0% hærri en meðaltalið árið 2003. Sambærilegar tölur voru 2,0% árið 2003 og 2,1% árið 2002.
     Meðaltal samræmdu vísitölunnar fyrir Ísland árið 2004 var 128,1 stig, 2,3% hærra en árið 2003. Sambærilegar tölur voru 1,4% árið 2003 en 5,3% árið 2002.



Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Nóvember 2003 - nóvember 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.