FRÉTT VERÐLAG 18. JANÚAR 2007

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 103,2 stig (2005=100) í desember síðastliðnum, hækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 107,1 stig, óbreytt frá nóvember.

Frá desember 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 1,9% á evrusvæðinu og 5,9% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,8% í Lettlandi og 6,6% í Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan 0,8% á Möltu og 1,2% í Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Nóvember 2005 til nóvember 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.