Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 113,9 stig (1996=100) í febrúar sl., hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 125,7 stig, lækkaði um 0,3% frá janúar.
Frá febrúar 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,5% að meðaltali í ríkjum EES, 1,6% á evrusvæðinu og 1,4% á Íslandi.
Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 2,6% í Grikklandi og 2,4% í Lúxemborg og á Ítalíu. Í Noregi mældist 1,5% verðhjöðnun og í Finnlandi var verðbólgan 0,2%.
Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur. |
1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands. |