FRÉTT VERÐLAG 17. MARS 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,3 stig (1996=100) í febrúar sl. og hækkaði um 0,3% frá janúar. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,3 stig, hún lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.
     Frá febrúar 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 2,1% á evrusvæðinu og 2,9% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,0% í Lettlandi og 4,6% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan í Danmörku, 1,0% og í Finnlandi en þar var vísitalan óbreytt.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Janúar 2004 - janúar 2005.

Talnaefni 
 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.