FRÉTT VERÐLAG 01. MARS 2005
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,9 stig (1996=100) í janúar sl. og lækkaði um 0,5% frá desember. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,5 stig, hún lækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði.
     Frá janúar 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,0% að meðaltali í ríkjum EES, 1,9% á evrusvæðinu og 2,7% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,7% í Lettlandi og 4,2% í Grikklandi og Eistlandi. Minnst var verðbólgan í Svíþjóð, 0,5% og í Finnlandi var 0,2% verðhjöðnun.




Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.