Samræmd vísitala neysluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu í janúar 2026 lækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Á einu ári hefur vísitalan hækkað um 2,0%.
Grunnskipti og breyting yfir í COICOP 2018
Samræmd vísitala neysluverðs er frá og með janúar 2026 reiknuð og gefin út miðað við COICOP2018-flokkunarkerfið sem er ný útgáfa af kerfinu sem áður var notað við flokkun neysluútgjalda (ECOICOP). Vegna þessara tímamóta er vísitalan gefin út á nýjum grunni: 2025 = 100.
Þar sem einhverjar breytingar verða á undirflokkum vísitölunnar eru nú gefnar út nýjar töflur fyrir undirvísitölur. Í þessum töflum eru tölur fyrir 2016-2025 en þær eru mat á því hverjar vogirnar/vísitölurnar hefðu geta verið ef COICOP2018 hefði verið notað við vinnslu þeirra.
Gömlu töflurnar eru áfram aðgengilegar undir eldra efni.
Nánari upplýsingar um breytingarnar má finna í skjalinu hér fyrir neðan.
Ný útgáfa af flokkunarkerfi í vísitölu neysluverðs
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Eurostat.