FRÉTT VERÐLAG 18. ÁGÚST 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,4 stig (2005=100) í júlí sl. og lækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 105,7 stig, hækkaði um 0,4% frá júní.
 
Frá júlí 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,4% að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu og 6,3% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,9% í Lettlandi og 6,3% á Íslandi. Minnst var verðbólgan 1,4% í Póllandi og Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Júní 2005 til júní 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.