FRÉTT VERÐLAG 19. JÚLÍ 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 117,9 stig (1996=100) í júní sl. og hækkaði um 0,1% frá maí. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,3 stig, hún hækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði.

Frá júní 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,0% að meðaltali í ríkjum EES, 2,1% á evrusvæðinu og 0,3% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,6% í Lettlandi og 3,7% í Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan 0,3% á Íslandi, 0,6% í Portúgal og 0,8% í Svíþjóð.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) maí 2004 - maí 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.