FRÉTT VERÐLAG 18. JÚLÍ 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,5 stig (2005=100) í júní sl. og hækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 105,3 stig, hækkaði um 1,3% frá maí.

Frá júní 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,4% að meðaltali í ríkjum EES, 2,5% á evrusvæðinu og 5,7% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,3% í Lettlandi og 5,7% á Íslandi. Minnst var verðbólgan 1,5% í Póllandi og Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Maí 2005 til maí 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.