Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 117,7 stig (1996=100) í maí sl. og hækkaði um 0,2% frá apríl. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,8 stig, hún lækkaði um 0,3% frá fyrra mánuði.
Frá maí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,9% að meðaltali, bæði í ríkjum EES og á evrusvæðinu og 0,5% á Íslandi.
Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,5% í Lettlandi og 3,7% í Lúxemborg. Minnst var verðbólgan 0,2% í Svíþjóð, 0,5% á Íslandi og 0,6% í Finnlandi.
Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Apríl 2004 - apríl 2005.