FRÉTT VERÐLAG 16. JÚNÍ 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,4 stig (2005=100) í maí sl. og hækkaði um 0,3% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 103,9 stig, hækkaði um 1,2% frá apríl.

Frá maí 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,4% að meðaltali í ríkjum EES, 2,5% á evrusvæðinu og 4,8% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,1% í Lettlandi og 4,8% í Slóvakíu og á Íslandi. Minnst var verðbólgan 1,5% í Póllandi og 1,7% í Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Apríl 2005 til apríl 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.