FRÉTT VERÐLAG 19. APRÍL 2005
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,9 stig (1996=100) í mars sl. og hækkaði um 0,5% frá febrúar. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,8 stig, hún hækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði.
     Frá mars 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,0% að meðaltali í ríkjum EES, 2,1% á evrusvæðinu og 2,5% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,6% í Lettlandi og 4,8% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,5% í Svíþjóð, og 0,9% í Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Febrúar 2004 - febrúar 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.