FRÉTT VERÐLAG 18. NÓVEMBER 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,1 stig (1996=100) í október sl. og hækkaði um 0,3% frá september. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,5 stig, hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.
       Frá október 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og 2,9% á Íslandi.
       Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,2% í Lettlandi og 6,4% í Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan í Finnlandi, 0,6% og í Bretlandi, 1,2%.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) September 2003 - September 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.