Vísitala byggingarkostnaðar í maí 2026 er 128.8 stig (desember 2021=100) og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Kostnaður við innflutt efni jókst um 0,2% en verð á innlendu efni var óbreytt. Þá jókst launakostnaður um 0,3% og kostnaður við vélar, flutning og orkunotkun um 0,1%.