FRÉTT VERÐLAG 30. MAÍ 2017

Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 1,4% milli mars og apríl 2017. Sjávarafurðir hækkuðu um 3,9% (áhrif á vísitölu 1,2%), afurðir stóriðju hækkuðu um 2,8% (0,9%), annar iðnaður lækkaði um 2,9% (-0,6%) og matvæli lækkuðu um 0,1% (0,0%).

Miðað við apríl 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,4%. Þar af hefur verð sjávarafurða lækkað um 9,2% og annar iðnaður lækkað um 19,4%. Afurðir stóriðju hafa hækkað um 7,8% á sama tímabili. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 3,9% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 8,4%.

Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.

Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2017
    Breyting frá fyrri mánuði  
  Vísitala   Áhrif á Breyting frá 
  4. ársf. 2005 = 100  %  vísitölu % fyrra ári %
         
Vísitala framleiðsluverðs 188,7 1,4 1,4 -5,4
Eftir atvinnugreinum:        
Sjávarafurðir 236,0 3,9 1,2 -9,2
Stóriðja 188,5 2,8 0,9 7,8
Matvæli 172,4 -0,1 0,0 -2,2
Annar iðnaður 142,5 -2,9 -0,6 -19,4
         
Eftir mörkuðum:        
Innlend sala 164,7 -1,6 -0,5 -8,4
Útfluttar afurðir 202,6 2,9 1,9 -3,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang framleidsluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.