Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,3% milli mars og apríl 2018. Afurðir stóriðju lækkuðu um 3,8% (áhrif á vísitölu -1,3%), annar iðnaður lækkaði um 0,9% (-0,2%). Sjávarafurðir hækkuðu um 0,6% (0,2%).
Vísitala framleiðsluverðs hefur hækkað um 1,0% frá apríl 2017 til apríl 2018. Þar af hefur verð sjávarafurða hækkað um 3,2%, afurðir stóriðju hækkað um 1,1% og matvæli hækkað um 0,9%. Annar iðnaður lækkaði hins vegar um 2,8% á sama tímabili.
Útfluttar afurðir hækkuðu um 1,3% á einu ári, en verð þeirra afurða sem seldar voru innanlands hækkuðu um 0,1%.
Vísitölur, breytingar og áhrif undirliða má sjá í töflu.
Vísitala framleiðsluverðs í apríl 2018 | ||||
Breyting frá fyrri mánuði | ||||
Vísitala | Áhrif á | Breyting frá | ||
4. ársf. 2005 = 100 | % | vísitölu % | fyrra ári % | |
Vísitala framleiðsluverðs | 190,5 | -1,3 | -1,3 | 1,0 |
Eftir atvinnugreinum | ||||
Sjávarafurðir | 243,6 | 0,6 | 0,2 | 3,2 |
Stóriðja | 190,6 | -3,8 | -1,3 | 1,1 |
Matvæli | 173,9 | -0,1 | 0,0 | 0,9 |
Annar iðnaður | 138,6 | -0,9 | -0,2 | -2,8 |
Eftir mörkuðum | ||||
Innlend sala | 164,9 | 0,0 | 0,0 | 0,1 |
Útfluttar afurðir | 205,4 | -2,0 | -1,3 | 1,3 |